6. október 2024

90 ár

Bifreiðastjórafélagið Frami fagnar 90 árum í dag 6. október 2024

Bifreiðastjórafélagið Hreyfill var stofnað 6. október 1934. Níu árum síðar, eða 1943 var Samvinnufélagið Hreyfill stofnað.

Þann 20. mars 1959 var kosið um nýtt nafn fyrir Bifreiðastjórafélagið, sem hlaut nafnið Frami umfram tillögur að “Röst” og “Akstur”.

Framkvæmdastjórn Frama sendir öllum sínum 315 félagsmönnum og öðrum aðstandendum félagsins, heillaóskir í tilefni dagsins.

Til stendur að halda félaginu veislu og verður hún auglýst síðar.

Til hamingju með daginn bílstjórar

Stjórn Frama

 

Augnablik